Hljómsveitarstjóri

„Nýlega hefur Ólöf fetað nýja braut hljómsveitarstjórnar. Það er þá sem ég fékk að vinna með henni. Ólöf reyndist þaulreynd á æfingum og á tónleikum og hafði góðan skilning á hinum flóknu þáttum þessa mikla meistaraverks.“

Joseph Ognibene, fyrrum fyrsta horn Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Ólöf Sigursveinsdóttir, svarthvít portrettmynd

Hljómsveitarstjórn – Íslenskir strengir stofnaðir 2017

Hljómsveitarstjórn Íslenskra strengja er á höndum Ólafar sem og hönnun hugmynda og framkvæmd fyrir tónleika hljómsveitarinnar. Hún vinnur náið með ólíkum tónskáldum og leitast við að skapa spennandi samtal um túlkun við frábæra flytjendur.

Konsertmeistarar: Sif Tulinius, Gróa Valdimarsdóttir, Sigurlaug Eðvaldsdóttir, Chrissie Telma Guðmundsdóttir og Agnes Eyja Guðmundsdóttir.

Íslenskir strengir hafa einnig frumflutt erlendar tónsmíðar á Íslandi, t.d. frá Lettlandi og Noregi. ÍS hefur haldið nokkra sjálfstæða tónleika í Hörpu en einnig sóst eftir að koma fram í tónleikaröðinni Sígildir sunnudagar í Norðurljósum og Tíbrá í Salnum í Kópavogi. ÍS hefur einnig spilað í tónleikahúsum á landsbyggðinni, s.s. Menningarhúsinu Tjarnarborg, í Hvoli og í Hveragerðiskirkju. Hér neðar má sjá lista um tónleika, flytjendur og tónskáld sem ÍS hefur unnið með. Fjölmargir einsöngvarar og einleikarar hafa komið við sögu en einnig ólík tónskáld landsins á sviði samtímatónlistar hafa lagt hljómsveitinni til verk sín. Þannig var það gjöf John Speight til Ólafar að frumflytja Kammerkonsert fyrir píanó og strengi eða Cantus III árið 2023. Einleikari var Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari og er konsertinn skrifaður fyrir hana.

Tónleikar

Bach og börnin / Bach and the Child – 2022

Harpa tónleikahús árið 2022. Flytjendur 80 manns. Flytjendur: Stúlknakórinn Graduale Futuri og Drengjakór Reykjavíkur, Einar Bjartur Egilsson píanó, Peter Tompkins óbó, Þóra Einarsdóttir sópran, Þorsteinn Freyr Sigurðsson tenór. Tónskáld: Johann Sebastian Bach, Snorri Sigfús Birgisson, Hafliði Hallgrímsson og Henry Purcell.

Hjálmar & Vasks – 2019

Flytjendur: Íslenskir strengir og kórinn Ægisif. Pantað nýtt verk eftir Hjálmar H. Ragnarsson og frumflutningur á Íslandi á Musica Adventus eftir lettneska tónskáldið Peteris Vasks.

Laudem Domini, kantata eftir Hjálmar H. Ragnarsson fyrir blandaðan kór, sópran, sóló-víólu og strengjasveit. Frumflutningur.

Íslenskir strengir + blásarar í Norðurljósum – 2018

Harpa. Flytjendur 34 strengir, blásarar, harpa og flygill. Einsöngvarar Hanna Dóra Sturludóttir mezzósópran og Þorsteinn Freyr Sigurðsson tenór. Joe Ognibene horn. Á efnisskránni G. Mahler: Kindertotenlieder, Benjamin Britten: Serenaða fyrir tenór, horn og strengi, Carl Sjöberg: Tonerna.

Corona og söknuður – 2021

Harpa Norðurljós og Hveragerðiskirkja.

  • John Speight: Elegy fyrir klarinett og strengi. Frumflutningur.
  • Sigursveinn D. Kristinsson: Sólin heim úr suðri snýr v/ljóð Jónasar Hallgrímssonar
  • Kristín Lárusdóttir: Söknuður fyrir kvæðakonu, klarinett og strengi. Frumflutningur.
  • Hrólfur Sæmundsson: Corona fyrir strengi. Frumflutningur.

Einsöngvarar Hrólfur Sæmundsson baritón, Kristín Lárusdóttir kvæðakona, einleikari Ármann Helgason klarinett.

Íslenskir strengir í Tjarnarborg – 2023

Menningarhúsið Tjarnarborg, Ólafsfjörður. Efnisskrá á Berjadögum. Einleikarar Tinna Þorsteinsdóttir píanó, Björg Brjánsdóttir þverflauta og Ármann Helgason klarinett. Á efnisskránni Anna Þorvaldsdóttir: Illumine, Hugi Guðmundsson: LUX, John Speight: Elegy, Jean Sibelius: Impromptu.

Íslenskir strengir og frumfluttar tónsmíðar 2018–2023

  • Birgit Djupedal (1994): „Sprund“ (2017) – svíta fyrir strengi, 18 mínútur. Frumflutt í Hörpu 2018.
  • Hjálmar H. Ragnarsson (1952): Laudem Domini (2019) fyrir blandaðan kór, sóló-víólu, sópran og strengjasveit, 14 mínútur. Frumflutt í Kristskirkju 2019.
  • Kristín Lárusdóttir (1974): Söknuður (2011) fyrir kvæðakonu, klarinett og strengi v/ljóð Ólínu Andrjesdóttur, 9 mínútur. Frumflutt í Hörpu 2021.
  • Hrólfur Sæmundsson (1973): Corona (2020), 23 mínútur. Frumflutt í Hörpu 2021.
  • John Speight (1945): Elegy fyrir klarinett og strengi, 7 mínútur. Frumflutt í Hörpu 2021. Ármann Helgason klarinett.
  • John Speight (1945): Cantus III (2008) – konsert fyrir sóló-píanó og strengi. Frumflutt á Berjadögum 2023. Tinna Þorsteinsdóttir píanó.

Ertu að leita að hljómsveitarstjóra?

Langar þig að koma á fót tónleikum með hljómsveit? Sendu línu á olofsi@gmail.com eða icelandicstrings@gmail.com, eða hringdu í síma +354 615 2231.