Sellóleikari

„Tónlist er sterkt friðar- og sameiningarafl. Hún er sjálfbær list sem endurnýjar sig sjálf og stendur fyrir sig sjálf hvar sem hún er flutt og túlkuð með persónulegum brag flytjandans.“

Ólöf Sigursveinsdóttir
Ólöf Sigursveinsdóttir með sellóið, portrettmynd

Ólöf Sigursveinsdóttir

Ólöf Sigursveinsdóttir er fædd í Reykjavík og ólst upp á Seltjarnarnesi. Hún er fædd inn í tónlistarfjölskyldu þar sem móðir hennar er söngkona og faðir hennar hornleikari og hljómsveitarstjóri. Hún varð heilluð af sellóinu fimm ára gömul og hlaut strax menntun í Tónskóla Sigursveins við Hellusund og við Tónlistarskólann í Reykjavík í Skipholti. Síðar hélt hún til náms í sellóleik við Tónlistarháskólann í Stuttgart og lauk Bachelor- og Mastersgráðu hjá sellóleikaranum Hans Häublein með hæstu einkunn. Samhliða náminu sótti hún tæknitíma í hljómsveitarstjórn við sama skóla og hóf að stjórna hljómsveit og kór í Þýskalandi 22 ára gömul. Hún hefur leikið sem sellóleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands, SinfoNord og Hljómsveit Íslensku óperunnar og hefur verið virk í íslensku tónlistarlífi frá 2011 og leikið einleikskonserta með hljómsveitum.

Ólöf var barokksellóleikari kammerhópsins ReykjavíkBarokk frá 2012–2022 og stofnmeðlimur. Hún leikur því jöfnum höndum forna og nýja tónlist. Sígildur tónlistarflutningur og möguleikar á áhugaverðum viðburðum, sérstaklega í dreifðum byggðum, er Ólöfu hugleikið og þar með möguleikar á tónlistarflutningi á landsbyggðinni og aðgangur í heimabyggð að verkum tónbókmenntanna. Háskólagráða hennar í tónlistarfjölmiðlun fær hana til að taka óvænta listræna snúninga sem geta gert tónleika Ólafar þess virði að heimsækja.

Ólöf spilar á sjaldgæft, ungverskt selló með heilskorinni bakhlið, smíðað 1845 af Franz Nagy í Pest (Búdapest). Hún leikur á boga frá ungverska nútímabogasmiðnum Péter Ivany, sem er úr dökkum pernambucco-við.

Barokkselló Ólafar er þýskt frá 18. öld.

„Að leika á selló lyftir þér út úr sjálfum þér og opnar þér óráðinn stað.“

Jacqueline du Pré